Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Viðskipti í Evrópu

Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið fengu Íslendingar aðgang að innra markaði Evrópusambandsins. Evrópa er okkar mikilvægasti markaður og lang stærsti hluti gjaldeyristekna okkar verður til af viðskiptum við önnur Evrópulönd. Til að eiga farsæl viðskipti er nauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum um einstaka markaði og eiga þess kost að leita aðstoðar við að komast í samband við mögulega samstarfsaðila.

Með aðgangi að ýmsum gagnabönkum, góðum tengslum við samstarfsaðila víða um heim og með skipulagningu ýmissa viðburða hér heima og erlendis getur Íslandsstofa auðveldað íslenskum fyrirtækjum að nýta sér þau tækifæri sem bjóðast til viðskipta í Evrópu.

Gagnabankar

Íslandsstofa hefur aðgang að ýmsum gagnabönkum þar sem finna má upplýsingar um lönd og markaði. Fyrirtæki og nemendur geta nýtt sér aðstöðuna hjá okkur við að leita í þessum grunnum.

Samstarfsóskir   

Töluvert berst af samstarfsóskum erlendis frá, bæði í tölvupósti og bréfleiðis, auk þess sem unnið er með slíkt í sérstökum gagnagrunni Enterprise Europe Network sem heitir Business Co-operation Database. Þar er bæði hægt að koma með tilboð um samstarfsóskir sem og leita eftir þeim með því að hafa samband við erna@islandsstofa.is

Tollar

Með EES samningnum og ýmsum tvíhliða samningum við ESB er íslenskum vörum í mörgum tilvikum veittur tollfrjáls aðgangur inn til Evrópu. Þó bera t.d. margar sjávar- og landbúnaðarafurðir toll inn í ESB. Í TARIC tollagagnabanka Evrópusambandsins á netinu má fletta upp og finna upplýsingar um tolla sem lagður er vörur sem flytja á til ESB, Íslandsstofa getur einnig aðstoðað við að finna upplýsingar um tolla og tollkvóta í Evrópu og víðar.

Nánari upplýsingar á vef Íslandsstofu 


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Viðskipti í Evrópu

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN