Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

CIP

   Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB

Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins

(The Competitiveness and Innovation Programme , CIP) , er ætlað að efla nýsköpun hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og stuðla þar með að samkeppnishæfni þeirra.

Áætlunin skiptist í þrjár undiráætlanir:

1.     Frumkvöðlastarfsemis- og nýsköpunaráætlun (Entrepreneurship and Innovation Programme - EIP), til stuðnings hagstæðs starfsumhverfis fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
2.     Upplýsingatækniáætlun (ICT policy support Programme - ICT PSP), sem hvetur til aukinnar þróunnar og notkunar upplýsingatækni.
3.     Orkuáætlun (Intellegent Energy-Europe Programme - IEE), sem hvetur til sjálfbærrar orkunotkunar.

Evrópusambandið leggur 3.621 milljón Evra í áætlunina fyrir tímabilið 2007-2013, sem skiptist niður á undiráætlanirnar og renna 60% til EIP, 20% til ICT og 20%IEE.

Nýsköpunaráætlunin EIP leggur áherslu á að skapa hagstætt starfsumhverfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki með því að styðja við þróun stefnu í nýsköpunarmálum og einfalda flæði þekkingar og stuðningsþjónustu á milli landa. Áherslur áætlunarinnar eru eftirfarandi: að bæta aðgengi lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni áhættufjárfesta og lánsábyrgðum, að veita viðskipta- og nýsköpunarstuðningsþjónustur í gegnum landsskrifstofur, stuðla að kynningum á frumkvöðlastarfi og nýsköpun, styðja við vistvæna nýsköpun (eco-Innovation) og styðja við stefnumótun sem ýtir undir frumkvöðlastarf og nýsköpun. Enterprise Europe Network er starfrækt undir þessari áætlun og hefur slóðina http://www.een.is/. Enterprise Europe Network býður litlum- og meðalstórum fyrirtækjum, háskólum og rannsóknastofnunum fjölbreytta þjónustu.Tengiliður áætlunarinnar er Evrópumiðstöð Impru, netfang: evropumidstod@nmi.is.

Upplýsingatækniáætlunin ICT PSP styður við dreifingu nýrra upplýsinga og samskiptatækni og bestu notkun á upplýsingum, samskiptum og tækni af borgurum, stjórnvöldum og fyrirtækjum ekki síst LMF. ICT PSP tengir betur hugmyndir um nýsköpun og samkeppnishæfi en áður hefur verið. Eftirfarandi stefnumótunarsvið eru studd af ICT PSP: eGovernment sem leiði til aukinnar skilvirkni og árnangri opinberrar stjórnsýslu og auðveldi samskipti borgara og fyrirtækja, eInclusion sem hefur tvö aðalmarkmið annað snýr að tækni og miðar að því að þróa aðgengilegra og notendavænni upplýsingatækni. Hitt snýr að félagslegu hliðinni og miðar að því að sem flestir noti upplýsingatækni í upplýsingaþjóðfélagi, óháð aldri, kyni, stöðu, þjóðerni o.fl. Þriðja sviðið er eHealth og snýr að viðhaldi á sjálfbærum heilbrigðiskerfum. Aðaláherslan er að tryggja innleiðingu tilbúinna kerfa á Evrópuvísu og fylgja þar með þeim breytingum sem hafa orðið vegna hreyfanleika fólks innan Evrópu. Tengiliður áætlunarinnar er Sigurður Guðmundsson, netfang: sigurgud@hi.is.

Orkuáætlunin IEE snýr að skilgreiningu og innleiðingu aðgerða til að auka orkunýtni og notkun endurnýjanlegra orkugjafa og auka öryggi á framboði og afhendingu á orku. Meðal áhersluatriða eru þróun og notkun vistvænna orkugjafa sér í lagi í byggingariðnaði og almennum iðnaði. Kynningu á nýjum og endurnýjanlegum orkugjöfum og stuðning við notkun fjölbreyttrar orku. Kynning á orkunýtni og notkunar á nýjum og endurnýjanlegum orkugjöfum í samgöngum. Horft verður til tækniþróunar og nýsköpunar á mörgum sviðum framleiðsluiðnaðar. Tengiliður áætlunarinnar er Sigurður Ingi Friðleifsson, netfang: sif@os.is.

CIP er miðað að viðskiptalífinu með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki en hvetur til þátttöku rannsóknaraðila, háskóla og opinberra stofnanna.

Evrópsk síða CIP.


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Um EEN » CIP 2007 - 2013

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN