Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Enterprise Europe Network

EEN - aðstoð til árangursEvrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, leiðir starfsemi  Enterprise Europe Network á Íslandi en Íslandsstofa og Rannís eru samstarfsaðilar hennar. Enterprise Europe Network (EEN) er stærsta tækniyfirfærslunet sinnar tegundar í heiminum og  hefur það að markmiði að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki, rannsóknaraðila, opinberar stofnanir og háskóla við að efla samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði.

Starfsemi Enterprise Europe Network stuðlar að færslu tækni og þekkingu á milli landa og eflir þannig stoðkerfi nýsköpunar sem er mikilvægt fyrir hagvöxt þjóða. Þjónusta EEN á Íslandi snýr að því að koma á viðskiptum og tengslum íslenskra fyrirtækja, stofnana og háskóla við aðila í Evrópu og víðar.  Veittar eru upplýsingar um lög og reglugerðir Evrópusambendsins tengdum nýsköpun, sem og um tollamál.  Enterprise Europe Network veitir upplýsingar um evrópsk samstarfsverkefni og möguleikjum á styrkjum sem tilheyra Nýsköpunaráætlun ESB og 7. rammaáætluninni.   Þannig styrkir Enterprise Europe Network alþjóðlegt samstarf og aðstoðar fyrirtæki við að nýta sér tækifæri sem bjóðast innan Evrópu.

Í hnotskurn býður Enterprise Europe Network  upp á leit að samstarfsaðilum vegna viðskipta,  tækni- og þekkingaryfirfærslu í gegnum gagnagrunn sinn og veitir viðskiptavinum sínum auðveldari aðgang að viðskiptaupplýsingum og styrkjamöguleikum í Evrópu.

Alls eru um 600 samstarfsaðilar í yfir 40 löndum í netverkinu og er Enterprise Europe Network því stærsta samstarfsnet sinnar tegundar vegna útbreiðslu sinnar sem og fjölbreytileika þjónustunar sem það veitir. 

Þeir sem eru áhugasamir um að fá frekari upplýsingar um netverkið snúi sér til starfsmanna Enterprise Europe Network á Íslandi.


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Um EEN

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „Ég hef í gegnum tengslanetið hjá EEN náð að byggja upp mjög árángursríkt samstarf við einn af leiðandi vísindamönnum í noktun stofnfrumna í læknisfræðilegri meðferð."

Dr. Ólafur E. Sigurjónsson - Blóðbankinn


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN