Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Upplýsingasetur um hugverkaréttindi

els_logoImpra og Einkaleyfastofan hafa gert með sér samning um stofnun og rekstur Upplýsingaseturs eða Patent Library (PATLIB) sem hefur starfsaðstöðu í húsnæði Impru að Borgum á Akureyri.  Tilgangurinn er að auka vitund og þekkingu almennings á hugverkaréttindum með aukinni fræðslu, upplýsingagjöf og bættri aðstöðu fyrir almenning til að kynna sér slík málefni. 

Rekstur Upplýsingasetursins gerir almenningi kleift að leita sér upplýsinga um hugverkaréttindi eða koma og framkvæma sjálft leit í gagnabönkum með aðstoð starfsmanns Impru.  Boðið er upp á aðstöðu í húsnæði Impru þar sem aðgengi er að tölvu sem tengd er við gagnabanka. 

Fyrir hverja?

Leit í gagnabönkum um einkaleyfi getur verið gagnleg fyrir aðila sem hyggjast sækja um einkaleyfi á eigin hugverkum og gefið þeim fyrstu hugmynd um hvort þegar er til einkaleyfi af svipuðum toga.  Einnig getur þetta nýst aðilum til þróunar sinna hugmynda því með því að skoða einkaleyfin má sjá hvaða þróun hefur átt sér stað undanfarin ár í greininni. 

Aðgengi að gagnabönkum getur því veitt margskonar upplýsingar um þróun og nýsköpun á ákveðnum sviðum sem kostur er á að nýta til góðs við hugmyndavinnu, undirbúning, þróun og framkvæmd hugmynda af öllu tagi. Með aðstoð starfsmanna upplýsingaseturs er mögulegt að fá mikilvægar upplýsingar sem geta skipt sköpum fyrir framgang nýrra viðskiptahugmynda.

Hvað er PATLIB?

PATLIB upplýsingasetur eru starfrækt um gjörvalla Evrópu og veita áhugasömum aðilum tækifæri til að kynna sér upplýsingar um einkaleyfi og tengd málefni. Á hverju PATLIB upplýsingasetri er þrautreynt starfsfólk sem aðstoðar einstaklinga og fyrirtæki á fjölmörgum sviðum hugverkaréttinda.

Þeir sem nýta sér þjónustu PATLIP upplýsingasetra eru meðal annars uppfinningamenn, frumkvöðlar, nemar, sérfræðingar og lítil og meðalstór fyrirtæki svo dæmi séu nefnd. Eitt helsta markmið með stofnun PATLIB upplýsingasetra er að efla samskipti og samvinnu einstakra einkaleyfastofnana í hverju landi.  Einnig var markmiðið að efla kynningarstarf á hugverkaréttindum og auka meðvitund fólks á einkaleyfum og þeirri þjónustu sem er í boði á þessum sviðum. Í dag eru um 320 upplýsingasetur starfrækt í Evrópu og fer þeim ört fjölgandi. Með starfrækslu PATLIB upplýsingaseturs hjá Impru á Akureyri gefst fólki kostur á aukinni þjónustu og fræðslu  á sviði hugverkaréttinda.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Hilmisson verkefnisstjóri s: 460 7977, netfang goh@nmi.is.


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Hugverkavernd

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „starfsmenn EEN á Íslandi hafa verið mjög liprir og úrræðagóðir við úrvinnslu fyrirspurna, sem í okkar tilfelli hafa verið framar öllum vonum."

Ásbjörn Torfason - Vistvæn Orka


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN