Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Styrkjamöguleikar: Vistvæn nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir.

Föstudaginn 23. apríl verður Enterprise Europe Network á Íslandi ( Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands ) með kynningarfund um evrópsk verkefni sem ganga út á nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum, t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu og byggingariðnaði.

Áhersla er lögð á verkefni sem komin eru á markaðsfærslustig þ.e. tækni, vöru eða framleiðsluaðferðir sem sýnt hefur verið fram á að virki tæknilega en ekki búið að koma í notkun á markaðinum enn sem komið er. Verkefnin skulu ennfremur miða að því að minnka umhverfisáhrif eða betrumbæta frammistöðu fyrirtækja í umhverfismálum.

Sjá nánar: http://ec.europa.eu/environment/eco-innovation/index_en.htm . 

Umsóknargátt var auglýst 13. apríl og umsóknarfrestur verður þann 9. september 2010. 

Fundurinn 23. apríl 2010 verður haldinn hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Keldnaholti kl. 9.00-11.00.

Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið amanda@nmi.is.   

Allar frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Amöndu Garner í síma 522 9268 og á netfanginu amanda@nmi.is.


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að EEN hefur hjálpað hugbúnaðarfyrirtækinu Clara við að ná viðskiptasamböndum í Bandaríkjunum - „Við mælum með þjónustu EEN fyrir fyrirtæki sem ætla sér að ná árangri erlendis."

Kári Rúnarsson - Clara


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN