Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Orkuráðstefna 25. mars í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu

Í tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu halda Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Enterprise Europe Network fund þann 25. mars nk. undir yfirskriftinni Framlag Íslands til þróunar í endurnýjanlegri orku. Iðnaðarráðherra mun opna dagskrána og fjallað verður m.a um nýsköpun í orkutækni, tækifæri íslenskra orkufyrirtækja erlendis og hvernig 2020 ákvæði Evrópusambandsins tengjast íslenskum orkumálum.

Fundurinn er haldinn að Gullteigi á Grand Hótel kl. 13:00-15:00. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á frettir@nmi.is.

Dagskrá

Ávarp Iðnaðarráðherra - Katrín Júlíusdóttir

Nýsköpun í orkutækni - Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Enterprise Europe Network: Tækifæri fyrir íslensk orkufyrirtæki erlendis -
Kristín Halldórsdóttir verkefnisstjóri EEN, Nýsköpunarmiðstöð Íslands

CarbFix: Binding koltvísýrings í basalti - Hólmfríður Sigurðardóttir, nýsköpun og þróun hjá Orkuveitu Reykjavíkur

Osmósuorka - Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir , verkefnisstjóri í efnaferlum og efnistækni, Nýsköpunarmiðstöð Íslands

2020 ákvæði Evrópusambandsins - hvernig tengist það íslenskum orkumálum? Guðni A. Jóhannesson, Orkumálastjóri  

GEORG - GEOthermal Research Group - Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Háskóla Íslands
Umræður

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum

Fundarstjóri: Rósa Signý Gísladóttir, markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Starfsmenn Enterprise Europe Network á Nýsköpunarmiðstöð, Rannís og Útflutningsráði veita upplýsingar um starfsemi sína að fundi loknum.

Upplýsingar veitir Kristín Halldórsdóttir í síma 522 9232 eða á kristinh@nmi.is

 


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „starfsmenn EEN á Íslandi hafa verið mjög liprir og úrræðagóðir við úrvinnslu fyrirspurna, sem í okkar tilfelli hafa verið framar öllum vonum."

Ásbjörn Torfason - Vistvæn Orka


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN