Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition 2010

Sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition 2010 verður haldin í Brussel dagana 27.-29. apríl nk. Á sýningunni í ár verður skipulagt fyrirtækjastefnumót og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram.

Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað sérstakt sérstakt vefsvæði í tengslum við sýninguna þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

Hvernig virkar þetta?

- Fyrst, skráðu þig á fyrirtækjastefnumótið á vefsíðunni, hér.

- Amanda Garner á Nýsköpunarmiðstöð Íslands getur hjálpað þér að skrá lýsingu á samstarfsósk (profile) sem verður birtur á netinu.

- Núna er þegar hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

- Hægt er að samþykkja eða hafna fundaróskum annarra fyrirtækja.

- Hægt er að prenta út dagskrá með öllum skipulögðum fundum.

- Fundirnir fara fram á Scottish Pavillion, Parc des Expositions, Brussels, Belgium.

Nánari upplýsingar veitir Amanda Garner hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - amanda@nmi.is, s. 522 9268


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN