Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Opin nýsköpun - Stefnumót hönnunar og tækni 7. - 8. júní í Berlín

Málþing í opinni nýsköpun undir yfirskriftinni ,,Stefnumót hönnunar og tækni” verður haldið dagana 7. og 8. júní n.k. í Berlín í tengslum við International Design Festival DMY. Boðið er uppá fyrirtækjastefnumót í kjölfar málþingsins sem er skipulagt af Enterprise Europe Network.
 
Skráning fer fram á heimasíðu málþingsins http://www.b2match.eu/open-innovation2012/  fyrir 17. maí og er ekkert þátttökugjald ef skráning fer fram fyrir þann tíma.

Hvernig virkar þetta?

  • Þú skráir þitt fyrirtæki í gegnum heimasíðu fyrirtækjastefnumótsins  http://www.b2match.eu/open-innovation2012/ og setur inn upplýsingar um hvers konar samstarfi þú ert að leita
  • Samstarfsóskir allra þátttakenda verða birtar á heimasíðunni
  • Tölvupóstur verður sendur til allra þátttakenda þegar hægt verður að byrja á því að bóka. Athugið fyrstir koma fyrstir fá.
  • Nokkrum dögum fyrir viðburðinn verður þátttakendum send tímatafla yfir bókaða fundi

Nánari upplýsingar og aðstoð vegna skráninga veitir Sandra Brá Jóhannsdóttir á netfanginu sandra@nmi.is og í s: 5229272


Samstarfsmöguleikar



Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „starfsmenn EEN á Íslandi hafa verið mjög liprir og úrræðagóðir við úrvinnslu fyrirspurna, sem í okkar tilfelli hafa verið framar öllum vonum."

Ásbjörn Torfason - Vistvæn Orka


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN