Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Orkumál- Opnað hefur verið fyrir ný köll innan ”Intelligent Energy Europe”

Evrópusambandið hefur sett fram metnaðarfull markmið hvað varðar hreina og örugga orku  fyrir Evrópubúa í framtíðinni. Til að ná þessum markmiðum er mikilvægt að ný þekking og ný tækni nái útbreiðslu á markaði.  Verkefnið Intelligent Energy Europe er sett á laggirnar til að auka möguleika á því.

Opnað hefur verið fyrir ný köll innan þess til að þróa tækninýjungar í tengslum við endurnýjanlega orku.   Verkefnið hefur þrjú meginmarkmið:

  •  Kynning á orkunýtni og að hvetja til skynsamlegrar nýtingar orku
  •  Ýta undir notkun nýrra orkugjafa og hvetja til fjölbreytni í orkunotkun
  •  Stuðla að meiri orkunýtingu í flutningum

Hér má nálgast nánari upplýsingar um Intelligent Energy Europe og um köllin sjálf hvernig eigi að sækja um.

Intelligent Energy Europe tilheyrir Samkeppnisáætlun Evrópusambandsins og tengiliður þess er Sigurður Ingi Friðleifsson, hjá Orkustofnun Akureyri, sif@os.is


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN