Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Fyrirtækjastefnumót í tengslum við jarðhitaráðstefnu á Íslandi

1. nóv. verður haldin ráðstefna um kortlagningu íslenska jarðvarmaklasans  á Íslandi ásamt  því að gerð verður grein fyrir heildarúttekt á jarðvarmanum á heimsvísu.  Dr. Michael Porter mun kynna niðurstöður þessa verkefnis og leggja fram tillögur að uppbyggingu íslenska jarðvarmaklasans og hvaða tækifæri eru fólgin í honum í alþjóðlegu samhengi.

Enterprise Europe Network á Íslandi skipuleggur fyrirtækjastefnumót að morgni ráðstefnudagsins.   Nú þegar hafa aðilar frá Ítalíu, Spáni, Póllandi og Þýskalandi lýst áhuga á  ráðstefnunni sjálfri og  að komast í tengsl við aðila hér innanlands. Við lýsum eftir áhuga íslenskra aðila að taka þátt í þessu fyrirtækjastefnumóti og hitta fyrir (nýja) áhugasama aðila í Evrópu með það að markmiði að yfirfæra okkar tækni og þekkingu enn frekar út fyrir landsteinana.  Vinsamlega hafið samband við Kristínu Halldórsdóttur á kristinh@nmi.is , eða í síma 522 9232 vanti ykkur nánari upplýsingar og ef þið hafið áhuga á þátttöku.  


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „Locatify á Íslandi þakkar þá góðu þjónustu sem EEN hefur veitt okkur. Við höfum náð góðum samstarfsaðilum í Evrópu sem stefna að sömu markmiðum og við."

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN