Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

e-Learning fyrirtækjastefnumót í Grikklandi í haust

Haldin verður sýningin e-Learning Expo í Athenu í Grikklandi dagana 2.-3. október nk. Á sýningunni í ár verður skipulagt fyrirtækjastefnumótið BusinessMatch og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram. Ókeypis verður inn á sýninguna og á fyrirtækjastefnumótið.

Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað vefsvæði fyrir fyrirtækjastefnumótið þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

Hvernig virkar þetta?

- Fyrst, skráðu þig á fyrirtækjastefnumótið á vefsíðunni hér fyrir 6. september.

- Arnheiður Ingjaldsdóttir á Nýsköpunarmiðstöð Íslands getur hjálpað þér að skrá lýsingu á samstarfsósk sem verður birtur á netinu.

- Núna er þegar hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

- Hægt er að samþykkja eða hafna fundaróskum annarra fyrirtækja.

- Hægt er að prenta út dagskrá með öllum skipulögðum fundum.

- Fundirnir fara fram á National Bank of Greece Training and Conference Centre 2.-3. október 2010 frá 10.00 til 17.00.

Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Ingjaldsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - aei@nmi.is, s. 522 9262


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN