Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Skipa- sjávarútvegstæknisýningin SMM 2010 - Hamburg sept. 2010

Skipa- og sjávarútvegstæknisýningin Shipbuilding, Machinery & Marine Technology International Trade Fair - SMM 2010 verður haldin í Hamburg dagana 7.-10. september nk. Á sýningunni í ár verður skipulagt fyrirtækjastefnumót MariMatch og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram.

Á vegum Enterprise Europe Network hefur nú verið opnað sérstakt sérstakt vefsvæði í tengslum við sýninguna þar sem sýnendur og sýningargestir geta skráð sig og komið upplýsingum um sig og fyrirtæki sín á framfæri við aðra þátttakendur. Þar er svo hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

Hvernig virkar þetta?

- Fyrst, skráðu þig á fyrirtækjastefnumótið á vefsíðunni, hér.

- Amanda Garner á Nýsköpunarmiðstöð Íslands getur hjálpað þér að skrá lýsingu á samstarfsósk (profile) sem verður birtur á netinu.

- Núna er þegar hægt að skoða upplýsingar um önnur fyrirtæki og óska eftir fundum.

- Hægt er að samþykkja eða hafna fundaróskum annarra fyrirtækja.

- Hægt er að prenta út dagskrá með öllum skipulögðum fundum.

- Fundirnir fara fram á Hamburg Trade Fair Ground , Hall B 6 (herbergi B 6.4) 9. september 2010 frá 10.30 til 17.00.

Nánari upplýsingar veitir Amanda Garner hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - amanda@nmi.is, s. 522 9268


Leitaðu tækifæra


Myndband frá fyrirtækjastefnumóti

 


evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „Locatify á Íslandi þakkar þá góðu þjónustu sem EEN hefur veitt okkur. Við höfum náð góðum samstarfsaðilum í Evrópu sem stefna að sömu markmiðum og við."

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN