Beint á ađalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Íslensk fyrirtćki fá ađstođ viđ fundarhald erlendis

Fjögur íslensk fyrirtæki fóru í nýliðnum mánuði á vel heppnað fyrirtækjastefnumót í Torino á Ítalíu. Stefnumótið var skipulagt af Enterprise Europe Network sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands er aðili að.

Ađgangur ađ fjármagni –Stjórnun nýsköpunar

Erfiðleikar við fjármögnun geta skipt sköpum í tengslum við að ná árangri í stjórnun nýsköpunar- sem felst í því að þróa og koma nýrri vöru eða nýrri þjónustu á markað.  

Styrkjartćkifćri innan ESB í upplýsingatćkni

Glærur Morten Möller frá kynningarfundi þann 3. nóvember um tækifærum innan 7. rannsóknaáætlunar og Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar ESB til styrkja á sviði upplýsingatækni eru nú aðgengilegar heimasíðu Rannís.

Fjögur íslensk fyrirtćki taka ţátt í stefnumóti í Torino

Fjögur íslensk fyrirtæki í upplýsingatækni hafa skráð sig til þátttöku á fyrirtækjastefnumót í Tóríno á Ítalíu þann 18. nóvember n.k.. Hátt í 160 fyrirtæki frá 15 löndum hafa skráð sig til þátttöku að þessu sinni en í dag var lokadagur skráningar.

Upplýsingatćkni - Styrkir til rannsókna og nýsköpunar

Kynningarfundur á Grand hótel Reykjavík fimmtudaginn 3. nóvember kl. 9-11

Rannís, Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands og Enterprise Europe Network efna til kynningarfundar á tækifærum innan 7. rannsóknaáætlunar og Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar ESB til styrkja á sviði upplýsingatækni

Fyrirtćkjastefnumót á ITN- Infrastructure,Telematics & Navigation sýningunni í Torino á Ítalíu 16.-18. nóvember

Íslenskum fyrirtækjum býðst að komast á fyrirtækjastefnumót þann 18. nóvember á sýningunni þar sem fyrirtækin velja sér aðila meðal þátttakenda til að halda stutta fundi með til að þróa viðskiptasambönd.

Fyrirtćkjastefnumót í Rotterdam 9. nóvember - siglinga og sjávarútvegur

9. nóvember næstkomandi er skipulagt fyrirtækjastefnumót á EUROPORT í Rotterdam, Holland. Á sýningunni verður skipulagt fyrirtækjastefnumót að venju og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram.

Fyrirtćkjastefnumót í Rimini 10. nóvember - orka og endurvinnsla

Dagana 9.-12. nóvember næstkomandi verður Ecomondo - ráðstefna og sýning tengd orkumálum og endurvinnslu, haldin í Rimini.  Enterprise Europe Network á Ítalíu skipuleggur fyrirtækjastefnumót  10.-11. nóvember í tengslum við sýninguna. Þar býðst  fyrirtækjum aðstoð við að finna samstarfsaðila og skipuleggja  viðskiptafundi fyrirfram.

Ráđstefna um matvćlaöryggi

Dagana 21. og 22. nóvember verður haldin í Kolding í Danmörku ráðstefnan "Food Processing Hygiene - Future demands from Market and Authorities". Ráðstefnan er alþjóðleg og ætluð fyrirtækjum í matvælaframleiðslu og framleiðendum véla og tækja í matvælaiðnaði. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig bæta megi matvælaframleiðslu með það að markmiði að auka matvælaöryggi og framleiðni. Það eru samtökin Stålcentrum sem standa að ráðstefnunni, en aðild að þeim á fjöldi fyrirtækja og stofnana í matvælaiðnaði og tengdum greinum.

Evrópska fyrirtćkjavikan 2011 - fjöldi áhugaverđra viđburđa í bođi

Tvö undanfarin ár hefur ein vika á ári verið helguð nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week eða evrópska fyrirtækjavikan. Í ár er vikan tileinkuð frumkvöðlum sem eru að takast á við það ferli sem fylgir frumkvöðlastarfi öðru sinni og nú með nýja eða breytta hugmynd í farteskinu.

 

Von um fyrirtćkjasamstarf eftir sjávarútvegsýningu

Mikil erill var við bás Enterprise Europe Network á Ice Fish - íslensku sjávarútvegssýningunni dagana 15-17 september síðastliðin. Fjölmargir aðilar sýndu starfseminni áhuga þar sem veittar voru upplýsingar um aðstoð við íslensk fyrirtæki í leit að samstarfi erlendis.

Enterprise Europe Network er á IceFish- velkomin á stand P60

Enterprise Europe Network þjónustar fyrirtæki og rannsóknaraðila meðal annars með því að koma nýjungum á framfæri erlendis og nálgast nýja þekkingu og tækni erlendis frá.

Dagur Víkinganna hjá Enterprise Europe Network 14. september!

Enterprise Europe Network á Íslandi - tekur á móti um 65 starfsmönnum Enterprise Europe Network frá Norðurlöndunum, Bretlandi, Írlandi og Hollandi, 14.september nk. Hver aðili mun kynna nokkur fyrirtæki frá sínu heimalandi með það að markmiði að leiða þau saman við önnur fyrirtæki í þessum löndum.

Fyrirtćkjastefnumót á íslensku sjávarútvegssýningunni

Evrópumiðstöð á Nýsköpunarmiðstöð Íslands skipuleggur fyrirtækjastefnumót í tengslum við íslensku sjávarútvegssýninguna sem fram fer dagana 22. - 23. september næstkomandi. Markmið stefnumótsins er að koma á sambandi milli fyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi og evrópskra fyrirtækja í tengslum við nýsköpun, tæknilegar lausnir, viðskipti og rannsóknir.

Opiđ fyrir umsóknir í 7. rannsóknaáćtluninni

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki í 7. rannsóknaáætlun ESB.

Kallađ eftir ţátttakendum á Nýsköpunarráđstefnu í Brussel

Í tengslum við stofnun Nýsköpunarsambandsins verður haldin nýsköpunarráðstefna í Brussel dagana 5.-6. desember nk.  Í því tilefni er auglýst eftir aðilum / fyrirtækjum sem eru framúrskarandi í sinni nýsköpun - hvort heldur úr stuðningsumhverfinu,  rannsóknarsamfélaginu eða viðskiptaumhverfinu.

Evreka – 25 ár af evrópskri nýsköpun

Rúmlega 4 þúsund Evreka verkefni á 25 árum, að umfangi 30 milljón milljónir €.

Rannsókna- og ţróunarstyrkir ađ upphćđ kr. 154 MKR til rafrćnnar stjórnsýslu

Citizen- Centric eGovernment Services 2011.

Fyrirtæki, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og háskóladeildir geta nú í annað skipti sótt um rannsókna- og þróunarstyrki í þessa áætlun sem er samstarfsverkefni Rannís, VINNOVA í Svíþjóð, ráðuneyti efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi og NordForsk. 

Ný snjallleiđsögn í bođi í Ţýskalandi fyrir tilstuđlan Evrópumiđstöđvar

Ţað er í mörgu að snúast hjá íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Locatify þessa dagana en fyrirtækið er eitt af þeim öflugu og spennandi frumkvöðlafyrirtækjum sem staðsett eru á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Locatify er með aðsetur í frumkvöðlasetrinu Kvosinni, Lækjargötu en þar eru auk þess í kringum 30 önnur frumkvöðlafyrirtæki sem starfa í ólíkum geirum og iðnuðum.

Rammaáćtlun ESB fćr nýtt heiti - Horizon 2020

Rammaáætlun ESB um rannsóknir og nýsköpun, sem taka mun við af 7. rá., hefur fengið nýtt heiti að undangenginni nafnasamkeppni.

Ţátttaka í opinberum útbođum erlendis

Nýverið héldu Íslandsstofa og Samtök upplýsingatæknifyrirtækja fjórða fundinn í fundaröð um markaðs- og sölumál upplýsingatæknifyrirtækja. Efni fundarins var þátttaka í opinberum útboðum erlendis og var honum ætlað að miðla upplýsingum og vekja umræður þátttakendaum efnið.

Erna Björnsdóttir, verkefnisstjóri Enterprise Europe Network (EEN) hjá Íslandsstofu, hafði framsögu á fundinum.

Tćkifćrin leynast víđa: Kynning á öryggis- og geimáćtlun 7. rá

Styrkjamöguleikar innan öryggis- og geimáætlunar 7. rannsóknaáætlunar ESB verða kynntir föstudaginn 10. júní kl. 9:00-11:00 á Grand Hótel Reykjavík.

Kynningarefniđ um styrki „Eco-Innovation" (Vistvćn Nýsköpun)

Evrópskur styrkur „Eco-Innovation"  fjallar um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum; t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu, vatnsnotkun og byggingariðnaði.

Kynningarfundur um evrópskan styrk „Eco –Innovation“

Kynningarfundur um evrópskan styrk „Eco -Innovation" (Vistvæn Nýsköpun) verður þriðjudaginn 31. maí 2011 kl. 13.00 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands - austurhúsi (sjá kort). Styrkurinn fjallar um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum; t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu, vatnsnotkun og byggingariðnaði.

Ráđstefnu aflýst ítrekađ vegna eldgosa

Fyrir rétt rúmu ári síðan stóð til að halda ráðstefnu og fyrirtækjastefnumót í Hollandi þar sem hátt í 70 aðilar innan Enterprise Europe Network ætluðu að koma saman og funda um möguleg milliríkjaviðskipti fyrirtækja í aðildarlöndum netverksins. Ráðstefnunni var aflýst vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og nú kemur gosið í Grímsvötnum einnig í veg fyrir sambærilega ráðstefnu hér í Reykjavík.

Dagur Víkinganna hjá Enterprise Europe Network- 25.maí !

Viðskipta- eða samstarfstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki.

Enterprise Europe Network á Íslandi - tekur á móti um 65 starfsmönnum Enterprise Europe Network frá Norðurlöndunum, Bretlandi, Írlandi og Hollandi, 25.maí nk. Hver aðili mun kynna um fimm fyrirtæki frá sínu heimalandi með það að markmiði að leiða þau saman við önnur fyrirtæki í þessum löndum.

Fyrirtćkjastefnumót á Intersolar Europe 2011

Dagana 8. -10. júní næstkomandi verður Intersolar Europe 2011 haldið í Munchen.  Enterprise Europe Network í Bayern Innovativ  skipuleggur fyrirtækjastefnumót  þann 9. júní í tengslum við sýninguna. Þar býðst fyrirtækjum aðstoð við að finna samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.

Vinnustofa: Virđisauki í jarđvarma

Vinnustofa um virðisauka í jarðvarma verður haldin í Sunnusal, Radison SAS, Hótel Sögu, miðvikudaginn 4.maí nk. milli 8:30-16:00. Þessi vinnustofa er skipulaögð af Gekon ehf. og fagráði jarðvarmaklasans, sem skipað var 16. mars sl.

Umsóknafrestur í "Vistvćna nýsköpun" er til 8. september 2011

Auglýst er eftir umsóknum í CIP - Eco-Innovation (Vistvæn nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir) sem fjallar um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum, t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu, vatnsnotkun og vistvæn byggingarefni.

Fyrirtćkjastefnumót í vefiđnađinum - WEB X.0

Fyrirtækjastefnumótið WEB X.0 verður haldið í Porto í Portúgal dagana 12.- 13.maí n.k. Markmið stefnumótsins er að leiða saman fyrirtæki í Evrópu og víðar sem starfa í vefiðnaðinum í von um mögulegt samstarf. Enterprise Europe Network í Portúgal er skipuleggjandi stefnumótsins sem er haldið í nánu samstarfi við vef- og tæknigeirann í Portúgal.

Orkufundurinn ”Sóum viđ orkunni?” tókst vel í gćr

Ráðstefnan sem haldin var í gær af tilefni af viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu tókst með ágætum.  Mæting var góð og erindin tóku yfir vítt svið og voru mjög áhugaverð.

Enterprise Europe Network hefur nú starfađ í 1000 daga

Enterprise Europe Network hefur nú starfað í 1000 daga og hefur á þeim tíma aðstoðað fleiri en 2,5 milljón fyrirtækja við að nýta sér kosti innri markaðar Evrópu.

Sóum viđ orkunni? Vika endurnýjanlegrar orku - dagskrá 11. apríl - Grand Hótel, kl 13:00-15:00

Dagskrá áður auglýsts orkudags 11. apríl liggur nú fyrir - vinsamlegast skráið ykkur á nmi@nmi.is, allir velkomnir

Evrópusambandiđ bođar til samráđs um stefnumótun í rannsóknum

Ţann 9. febrúar gaf framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins út grænbók um stefnumótun sambandsins á sviði rannsókna og nýsköpunar fyrir árabilið 2014-2020. Hagsmunaaðilum er boðið að bregðast við tillögunum fyrir 20. maí nk.

Áhugi frá Bretlandi á íslenskum tölvufyrirtćkjum

Á dögunum fékk Enterprise Europe Network á Íslandi heimsókn frá Sunny Claire, samstarfsaðila hjá Birmingham Chamber of Commerce and Industry. Tilgangur heimsóknarinnar var m.a. að hitta íslensk tölvuleikjafyrirtæki og kanna áhuga þeirra á mögulegu samstarfi við leikjafyrirtæki í og umhverfis Birmingham.

Orkuráđstefna 11. apríl - í tilefni viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu

Í tilefni viku endurnýjanlegrar orku í Evrópu halda Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Enterprise Europe Network fund þann 11. apríl nk. undir yfirskriftinni "Sóum við orkunni?". Takið endilega daginn frá !

Euraxess – starfatorg fyrir vísindamenn

Euraxess er sérhæft starfatorg fyrir vísindamenn og alla sem starfa við rannsóknir í Evrópu. Fyrirtæki og stofnanir, sem koma að rannsóknum, geta haft tvenns konar not af starfatorginu.

Auglýstir styrkir - orkunýting

Intelligent Energy Europe tilheyrir Nýsköpunar- og Samkeppnisáætlun ESB og er ætlað að styðja við verkefni sem stuðla að betri orkunýtingu og þróun sjálfbærra orkulausna.

Ţjónusta Enterprise Europe Network - grein í "Enterprise and Industry"

Enterprise Europe Network, aðstoðar lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi við að finna samstarfsaðila, hvort heldur  viðskipta- eða tæknilegs eðlis. 

Fyrirtćkjastefnumót á European Seafood Exposition, Brussel - 3.-4. maí 2011

Dagana 3. - 4. maí næstkomandi verður European Seafood Exposition haldin í Brussel.  Á sýningunni verður skipulagt fyrirtækjastefnumót að venju og býðst fyrirtækjum þannig aðstoð við að finna samstarfsaðila og skipuleggja hálftíma viðskiptafundi fyrirfram.

Tćkniţróunarsjóđur - úthlutun á Kíminu- frumkvöđlasetri á NMÍ

Tækniþróunarsjóður kynnir úthlutun sl. árs og nýtt áhrifamat sjóðsins nk. föstudag 28. janúar kl 15-17. Kynningin fer fram í Kíminu,  einu af frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, að Vatnagörðum 18

Námskeiđ um stefnumótun ESB á sviđi rannsókna og nýsköpunar

Námskeiði um stefnu Evrópusambandsins í rannsóknum og nýsköpun, sem Rannís og EEN standa fyrir í samstarfi við Vísinda- og tækniráð verður haldið þriðjudaginn 25.janúar nk. . Námskeiðið er sérstaklega ætlað stefnumótandi aðilum hér á landi í þeim tilgangi að auðvelda þeim að fylgjast með þróun og breytingum á stefnu sambandsins á umræddu sviði.

Evrópusamvinna - tćkifćri í Evrópusamstarfi

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 13. janúar 2011 kl. 15-17.30. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs. Einnig verða kynntar nokkrar norrænar áætlanir.

Starf á Evrópumiđstöđ- veriđ ađ vinna í umsóknunum

Umsóknarfrestur um starf hjá Enterprise Europe Network rann út 17.desember sl.  Um 130 manns sóttu um.  Verið er að vinna úr umsóknunum og vonumst við til að geta kallað í viðtöl upp úr 17. janúar.

Leitađu tćkifćra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Ţú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir ţú?

Að „Ég hef í gegnum tengslanetið hjá EEN náð að byggja upp mjög árángursríkt samstarf við einn af leiðandi vísindamönnum í noktun stofnfrumna í læknisfræðilegri meðferð."

Dr. Ólafur E. Sigurjónsson - Blóðbankinn


Flýtileiđir


Fréttaveita EEN