Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Viðskiptafundir og sjávarútvegssýning

Sjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár býðst fyrirtækjum í fyrsta skipti aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.

All Energy í Skotlandi 20. maí 2010

Ráðstefnan og sýningin "All Energy" verður haldin í Aberdeen í Skotlandi dagana 19.-20. mai 2010.

Íslandsdagur í Milanó

Borgarstjórinn í Mílanó hefur boðið til Íslandsdags þann 26. febrúar n.k. Af því tilefni skipuleggur Útflutningsráð sendinefnd íslenskra fyrirtækja til borgarinnar og mun Össur Skarphéðinsson, utanríksiráðherra, fara fyrir hópnum. Í sendinefndinni verða m.a. fyrirtæki úr ferðaþjónustu, orkugeira og hönnun.

Gríðarleg fjölgun íslenskra umsókna í Mannauðsáætlun Evrópusambandsins

Undanfarna mánuði hefur íslenskum umsóknum í rannsóknaáætlun Evrópusambandsins fjölgað mikið, þó ekki síst í mannauðsáætlunina People. Miðvikudaginn 6. maí stóðu Rannís og Rannsóknaþjónusta HÍ fyrir kynningarfundi á þátttökutækifærum í Industry-Academia (IAPP), sem er hluti mannauðsáætlunarinnar, en þar hefur íslensk þátttaka verið takmörkuð fram til þessa.

Fyrirtækjastefnumót á CeBit tæknisýningunni í Þýskalandi í mars 2010

Dagana 2. - 6. mars næstkomandi verður CeBit tæknisýningin í Hannover í Þýskalandi. Heimasíða sýningarinnar

Nýsköpunarmiðstöð Íslands er þátttakandi í Enterprise Europe Network (EEN) sem hefur það að markmiði að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki.

Eurostars - Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Fjórða lýsing eftir umsóknum til Eurostars er opin. Skilafrestur er til  25. Febrúar  2010  kl. 20:00.
Vilt þú stækka grundvöllinn fyrir Nýsköpunar- og þróunarverkefnið þitt með því að það verði að Eurostars verkefni? Nú er lýst eftir umsóknum sem berist fyrir 25. febrúar 2010.

Lífvísindi: Fyrirtækjastefnumót í Skotlandi 5. febrúar 2010

Fyrirtæki og stofnanir í lífvísindum, sem eru að leita að samstarfsaðilum, gætu auðveldlega fundið þá á fyrirtækjastefnumóti Enterprise Europe Life Sciences.

Fyrirtækjastefnumót: Oceanology International og European Seafood Exposition 2010

Í tengslum við þessar sýningar skipuleggur Enterprise Europe Network fyrirtækjastefnumót. Þau fyrirtæki sem senda inn prófíla fá þá birta á gagnagrunni sem verður öllum þátttakendum sýningarinnar opinn. Með aðstoð Evrópumiðstöðvar og Enterprise Europe Network gagnagrunnsins er hægt að komast í samskipti við þau fyrirtæki/stofnanir sem þykja áhugaverð. Fyrirtækjastefnumótin eru kjörinn vettvangur til að ræða möguleika á samstarfi. Evrópumiðstöð aðstoðar við gerð prófíla og annað sem viðkemur skráningu þeirra kostnaðarlaust.

Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN