Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Nýsköpunarhæfni Evrópuþjóða 2008

Nýsköpunarhæfni Evrópuþjóða er mæld árlega og gefin út í þar til gerðri skýrslu, European Innovation Scoreboard (EIS). Komin er út skýrsla fyrir árið 2008, þar sem fram kemur að Danmörk, Svíþjóð og Finnland eru meðal forystuþjóða í nýsköpun í Evrópu. Ísland er talið miðlungshæft í nýsköpun -moderate innovators- ásamt m.a Spáni og Ítalíu.

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi á Háskólatorgi

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjörið tækifæri fyrir alla áhugasama að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.

Auglýst eftir styrkumsóknum sem tengjast nýsköpun og samkeppnishæfni

Eitt af verkefnum Enterprise Europe Network er að veita upplýsingar um þá styrki Evrópusambandsins sem tengjast samkeppnishæfni og nýsköpun. Þessir styrkir eru misháir en öllu jafnan er gerð krafa um samvinnu milli landa og mælanlegs ávinnings verkefnis.

EUROGIA+ styrkir í orkutækni

EUROGIA+ (Klasaáætlun Evreka á sviði orkutækni) er fimm ára EVREKA áætlun sem miðar að tækniforystu fyrir samkeppnishæfan orkuiðnað í Evrópu. Aætlunin tekur til orkuiðnaðar á breiðum grundvelli og hefur nýlega verið útvíkkuð til endurnýjanlegrar orku og orkutækni á nýjum sviðum. Önnur lýsing eftir umsóknum opnar 1. janúar 2009.

EUROGIA+ styrkir í orkutækni

EUROGIA+ (Klasaáætlun Evreka á sviði orkutækni) er fimm ára EVREKA áætlun sem miðar að tækniforystu fyrir samkeppnishæfan orkuiðnað í Evrópu. Aætlunin tekur til orkuiðnaðar á breiðum grundvelli og hefur nýlega verið útvíkkuð til endurnýjanlegrar orku og orkutækni á nýjum sviðum. Önnur lýsing eftir umsóknum opnar 1. janúar 2009.


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN