Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Viðskiptafundir og sjávarútvegssýning

Sjávarútvegssýningin Fish International 2010 verður haldin í Bremen dagana 21.-23. febrúar nk. Á sýningunni í ár býðst fyrirtækjum í fyrsta skipti aðstoð við að finna mögulega samstarfsaðila og skipuleggja viðskiptafundi fyrirfram.

All Energy í Skotlandi 20. maí 2010

Ráðstefnan og sýningin "All Energy" verður haldin í Aberdeen í Skotlandi dagana 19.-20. mai 2010.

Íslandsdagur í Milanó

Borgarstjórinn í Mílanó hefur boðið til Íslandsdags þann 26. febrúar n.k. Af því tilefni skipuleggur Útflutningsráð sendinefnd íslenskra fyrirtækja til borgarinnar og mun Össur Skarphéðinsson, utanríksiráðherra, fara fyrir hópnum. Í sendinefndinni verða m.a. fyrirtæki úr ferðaþjónustu, orkugeira og hönnun.

Gríðarleg fjölgun íslenskra umsókna í Mannauðsáætlun Evrópusambandsins

Undanfarna mánuði hefur íslenskum umsóknum í rannsóknaáætlun Evrópusambandsins fjölgað mikið, þó ekki síst í mannauðsáætlunina People. Miðvikudaginn 6. maí stóðu Rannís og Rannsóknaþjónusta HÍ fyrir kynningarfundi á þátttökutækifærum í Industry-Academia (IAPP), sem er hluti mannauðsáætlunarinnar, en þar hefur íslensk þátttaka verið takmörkuð fram til þessa.

Fyrirtækjastefnumót á CeBit tæknisýningunni í Þýskalandi í mars 2010

Dagana 2. - 6. mars næstkomandi verður CeBit tæknisýningin í Hannover í Þýskalandi. Heimasíða sýningarinnar

Nýsköpunarmiðstöð Íslands er þátttakandi í Enterprise Europe Network (EEN) sem hefur það að markmiði að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki.

Eurostars - Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Fjórða lýsing eftir umsóknum til Eurostars er opin. Skilafrestur er til  25. Febrúar  2010  kl. 20:00.
Vilt þú stækka grundvöllinn fyrir Nýsköpunar- og þróunarverkefnið þitt með því að það verði að Eurostars verkefni? Nú er lýst eftir umsóknum sem berist fyrir 25. febrúar 2010.

Lífvísindi: Fyrirtækjastefnumót í Skotlandi 5. febrúar 2010

Fyrirtæki og stofnanir í lífvísindum, sem eru að leita að samstarfsaðilum, gætu auðveldlega fundið þá á fyrirtækjastefnumóti Enterprise Europe Life Sciences.

Fyrirtækjastefnumót: Oceanology International og European Seafood Exposition 2010

Í tengslum við þessar sýningar skipuleggur Enterprise Europe Network fyrirtækjastefnumót. Þau fyrirtæki sem senda inn prófíla fá þá birta á gagnagrunni sem verður öllum þátttakendum sýningarinnar opinn. Með aðstoð Evrópumiðstöðvar og Enterprise Europe Network gagnagrunnsins er hægt að komast í samskipti við þau fyrirtæki/stofnanir sem þykja áhugaverð. Fyrirtækjastefnumótin eru kjörinn vettvangur til að ræða möguleika á samstarfi. Evrópumiðstöð aðstoðar við gerð prófíla og annað sem viðkemur skráningu þeirra kostnaðarlaust.

Upplýsingatæknifréttabréf Enterprise Europe Network

Fyrsta fréttabréf EEN í upplýsingatækni er komið út. Þar er að finna upplýsingar um aðila sem vilja fara í alþjóðlegt samstarf, eru að leita að nýrri tækni, næstu skipulögðu fyrirtækjastefnumót ofl. ofl.

Kynning á EU Network of Female Entrepreneurs Ambassadors

Á Athafnaviku sem nú stendur yfir hefur Enterprise Europe Network kynnt verkefnið EU Network of Felmale Entrepreneurs Ambassadors.  Fyrst á þriðjudeginum, sem tileinkaður var athafnasemi kvenna og nú í dag á Nýsköpunarmessu í HÍ. 

Fyrirtækjastefnumót á Mobile World Congress í Barselóna á Spáni 15.-18. feb.

Dagana 15. - 18. febrúar næstkomandi er skipulagt fyrirtækjastefnumót á Mobile World Congress í Barselóna á Spáni.

Eflum nýsköpun innan starfandi fyrirtækja

Nýsköpun er óaðskiljanlegur hluti af vexti, velgengni og auði fyrirtækja og þjóða. Í þjóðfélaginu hefur mikið verið talað um nýsköpun sprotafyrirtækja en ekki má gleyma því mikilvæga hlutverki sem starfandi fyrirtæki gegna hvað varðar nýsköpunarvinnu og að skapa menningu sem ýtir undir nýjar hugmyndir.

Heimsókn til Galileo Control Centre í Oberpfaffenhofen í Þýskalandi 26.-27. nóv.

Enterprise Europe Network hefur skipulagt ferð til Galileo Control Centre í Oberpfaffenhofen í Þýskalandi 26.-27. nóv. þar sem hægt er að prófa ýmsa tækni með tilliti til Galileo gervitunglsins.

Minni aðgangur að fjármagni veldur áhyggjum - Gallup könnun birt í september

Aðgangur að fjármagni er mikilvægur þáttur í frumkvöðlastarfsemi, samkeppnishæfni og nýsköpun og getur skipt sköpum fyrir vöxt fyrirtækja. Samt hefur það sýnt sig að lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu hafa oft á tíðum ekki aðgang að því fjármagni sem þau telja sig þurfa til að vaxa frekar.

Ambassadorar á Alþjóðlegu athafnavikunni, 17. nóvember nk.

Enterprise Europe Network á Nýsköpunarmiðstöð Íslands verður þátttakandi í spennandi tveggja ára verkefni sem hófst í ágúst síðast liðnum - EU Network of Female Entrepreneurship Ambassadors.

Þín Evrópa

Fyrirtæki sem selja vörur og þjónustu til Evrópusambandsins eða hyggjast hefja starfsemi þar ættu að kynna sér upplýsingavefinn „Your Europe".

Íslenskum fyrirtækjum vel tekið á fyrirtækjastefnumóti í Torínó á Ítalíu

Enterprise Europe Network á Íslandi stóð að fyrirtækjastefnumóti á ITN tæknisýningunni í Torínó á Ítalíu dagana 15.-16. október sl.

Umsóknarfrestur vegna Rannsókna í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Næsti umsóknarfrestur í áætlun Evrópusambandsins vegna Rannsókna í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem áður nefndist CRAFT, er 3. desember 2009.

Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með prófíl hjá Enterprise Europe Network

 

ReMake Electric er stórhuga nýsköpunarfyrirtæki sem fengið hefur alþjóðleg einkaleyfi á nýjum  rafmagnsöryggisútbúnaði fyrir heimili og fyrirtæki .  Fyrirtækið hefur fengið samþykktan prófíl inni í gangagrunni Enterprise Europe Network, sem er viðurkenning á nýsköpun fyrirtækisins og þekkingu.

Nýsköpun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki - umsóknarfrestur 30. okt 2009

ERA-Net er samstarf evrópskra rannsóknasjóða og styrkja rannsóknir og þróun á ýmsum sviðum. Íslenskir rannsóknasjóðir og RANNÍS taka þátt í ýmsum ERA-Netum sem gerir íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í fjölþjóðlegum rannsóknaverkefnum. Hvert ERA-Net hefur sín eigin áherslusvið, þátttökureglur og umsóknarfresti. Hér er hægt að lesa um eðli og tilgang ERA-Neta.

Fjórir fyrirmyndarkvenfrumkvöðlar valdir

Starfshópur frá Impru og frá Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands funduðu með aðilum í Enterprise Europe Network í Danmörku og Noregi, vegna verkefnisins EU Network of Female Entrepreneurship Ambassadors.  Markmiðið var að leggja drög að því að velja þá kvenfrumkvöðla sem gætu orðið fyrirmyndir annarra kvenna í þessum löndum varðandi stofnun og rekstur fyrirtækja.

Viltu koma þinni nýjung á framfæri erlendis eða nálgast nýja tækni eða þekkingu erlendis frá?

Nýsköpun og tækniyfirfærsla eru mikilvægar forsendur hagvaxtar og velferðar landa um ókomin ár. Auk þess gefa nýsköpun og tækniyfirfærsla hagkerfinu meiri vídd og eru til vitnis um virkni þess. 

Frestur fyrir umsóknir vegna Evrópuverkefnisins Vistvæn nýsköpun framlengdur til 15. sept.

Af tæknilegum orsökum hefur frestur til að skila inn umsóknum vegna Evrópuverkefnisins Vistvæn nýsköpun verið framlengdur til 15. september.

Endurnýjanleg orka, stjórnun auðlinda og orkunýting

Ráðstefna um fjármögnun tengdum endurnýjanlegri orku og loftlagsbreytingum stendur fyrir dyrum í Kaupmannahöfni  23.- 24. september nk.

Auglýst hafa verið tvö útboð undir Samkeppnis-og nýsköpunaráætlun ESB

Verkefnin heita „Lead Market Initiative and Sustainable Construction " og „Implementation and Development of a Construction Information Platform".

Leit hafin að fyrirmyndarfrumkvöðli kvenna!

Enterprise Europe Network á Íslandi verður þátttakandi í spennandi verkefni sem er að fara af stað nú í ágúst - EU Network of Female Entrepreneurship Ambassadors.  Meginmarkmið þess er að finna a.m.k. þrjá íslenska kvenfrumkvöðla, sem hafa skarað fram úr á sínu sviði.

Samkeppnishæfni og sjálfbærni ferðaþjónustu í Evrópu

Umsóknarfrestur í "Networks for the Competitiveness and sustainability of European tourism", hefur verið lengdur til 15.september. Ætlunin er að verkefnið fari af stað í janúarbyrjun 2010 og sé til 18 mánaða.

Orkuráðstefnan World Bioenergy - Clean Vehicles & Fuels

Orkuráðstefnan  World Bioenergy-Clean Vehicles & Fuels verður haldin í Stokkhólmi dagana 16.-18. September nk.  Þessi ráðstefna er tileinkuð innleiðingu lífrænna orkugjafa og sjálfbærni í samgöngum

Skýrari mynd af stuðningsumhverfinu á SME Week 2009

Samkvæmt könnun sem gerð var meðal þátttakenda á SME Week í maí 2009, þar sem stuðningsaðilar við nýsköpun kynntu þjónustu sína, sögðust 82%  vera með mikið skýrari eða skýrari mynd af stuðningsumhverfinu eftir fundinn.

Skýrari mynd af stuðningsumhverfinu á SME Week 2009

Samkvæmt könnun sem gerð var meðal þátttakenda á SME Week í maí 2009, þar sem stuðningsaðilar við nýsköpun kynntu þjónustu sína, sögðust 82%  vera með mikið skýrari eða skýrari mynd af stuðningsumhverfinu eftir fundinn.

Fyrirtækjastefnumót á sjávarútvegssýningunni ITECH'MER í Rennes í Frakklandi í október

Íslenskum fyrirtækjum býðst að fara á fyrirtækjastefnumót á frönsku ITECH'MER  sjávarútvegssýningunni þar sem þátttakandi fyrirtæki velja sér aðila til að halda stutta fundi með til að skapa viðskiptasambönd.

Skapaðu viðskiptasambönd á ITN tæknisýningunni í Torino á Ítalíu í október

Íslenskum fyrirtækjum býðst að fara á fyrirtækjastefnumót á ITN tæknisýningunni (ITN stendur fyrir Infrastructure, Telematics & Navigation) þar sem þátttatakandi fyrirtæki velja sér aðila til að halda stutta fundi með til að skapa viðskiptasambönd.

Að skrifa samkeppnishæfa umsókn í 7. rannsóknaáætlun ESB

Viltu læra hvernig hægt er að sækja fé í 7. rannsóknaáætlunina og komast í spennandi rannsóknaverkefni á þínu fræðasviði? Nú er rétti tíminn, því umsóknafrestir í flestum undiráætlunum eru framundan í haust.

Umsóknarfresturinn innan Europa INNOVA um Innovation Platforms for eco-innovation

Hér er um endurauglýstan umsóknarfrest að ræða þannig að umsóknarfrestur verður stuttur eða til 16. júlí.  Nokkrar umsóknir bárust á síðasta umsóknarfresti en engin þeirra uppfyllti lágmarkskröfur um samstarfsaðila. 

Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun og kynnir í leiðinni þjónustu Enterprise Europe Network

Auglýst hafa verið tvö útboð undir Nýsköpunaráætlun ESB.

Verkefnin heita „Identification of future skills needs in micro and craft (-type) enterprises up to 2020 " og „Development of a sector strategy for the European Community with regard to the competitiveness of the construction sector and its enterprises" 

Útkoma af könnunni um Stuðningsumhverfi nýsköpunar í Evópu

Hægt er að sjá útkomuna úr könnuninni á Stuðningsumhverfi nýsköpunar í Evrópu sem send var út í apríl sl.

Fyrirtækjastefnumót á ITN, Infrastructure, Telematics and Navigation Expo sýningunni í Torino 15.-16. október

Íslenskum fyrirtækjum býðst að komast á fyrirtækjastefnumót á sýningunni þar sem fyrirtækin velja sér aðila meðal þátttakenda til að halda stutta fundi með til að þróa viðskiptasambönd.

Kynningarefni - styrkjamöguleikar: Vistvæn nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir.

Þriðjudaginn 9. júní var Enterprise Europe Network á Íslandi með kynningarfund um evrópsk verkefni "Eco -Innovation" (Vistvæn Nýsköpun) sem fjallar um nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum, t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu og byggingariðnaði.

 

Auglýstur hefur verið umsóknarfrestur útboðs undir Nýsköpunaráætlun ESB

Umsóknarfrestur vegna verkefnisins „EU e-skills week" hefur verið auglýstur en hann er til 31. júlí 2009.

Umsóknarfrestur hjá Samkeppnis- og nýsköpunaráætluninni vegna verkefna um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja eða „National platforms for the promotion of CSR“

Auglýstur hefur verið umsóknarfrestur til kl. 17:00 að staðartíma í Brussel þann 17. júlí 2009.

Sólarkísill á Íslandi- Áhugasamir aðilar frá Ítalíu

Enterprise Europe Network á Íslandi var þáttakandi í byrjun maí, á fyrirstækjastefnumóti, Solar Tech, á einni stærstu "sólartækni" sýningu í Evrópu - SOLAREXPO.

300 þátttakendur á kynningarfundi um stoðumhverfi nýsköpunar

Fundurinn var hápunktur á evrópsku fyrirtækjavikunni hér á Íslandi eða "European SME-week" sem haldin er um alla Evrópu dagana 6.-14. maí.

SME Week: Ráðgjöf, fjármögnun og tengslamyndun

Dagana 6.-14. maí stendur Evrópusambandið fyrir átaki til að undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og atvinnuuppbyggingu í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week.
Sjá dagskrá hér

SME Week: Ráðgjöf, fjármögnun og tengslamyndun

Dagana 6.-14. maí stendur Evrópusambandið fyrir átaki til að undirstrika mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi og atvinnuuppbyggingu í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week.
Sjá dagskrá hér

Náðu árangri í erlendum útboðum

Útflutningsráð Íslands stendur fyrir námskeiði um erlend útboð, þar sem farið verður yfir tilboðsferlið, allt frá upplýsingaöflun til hagnýtra ráða við tilboðsgerð. Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 13. maí kl. 09.00-17.00 á Radisson SAS Hótel Sögu.

Mannauðsáætlun Evrópusambandsins (People) kynnt á morgunverðarfundi á Grand hóteli Reykjavík

Miðvikudaginn 6. maí verða þátttökumöguleikar í Mannauðsáætlun Evrópusambandsins (People) kynntir á morgunverðarfundi á Grand hóteli Reykjavík.

Umsóknarfrestur fyrir umhverfisvæna nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir

Auglýstur hefur verið umsóknarfrestur fyrir umhverfisvæna nýsköpun undir Nýsköpunaráætlun ESB. Fresturinn er til kl. 17:00 að staðartíma í Brussel þann 10. september 2009.

Erasmus for Young Entrepreneurs; Frumkvöðlar í læri - hjá sér reyndari

Ungir frumkvöðlar víðsvegar um Evrópu eiga þess kost að sækja um að komast í vinnu hjá sér „eldri" og reyndari frumkvöðlum.  Markmiðið með þessu er að kynna sér og læra, hvernig hinir reyndu frumkvöðlar hafa náð að stjórna fyrirtækjum sínum til árangurs.

Evrópuhópurinn um landið í mars

Í mars 2009 stóð Evrópuhópurinn (www.evropusamvinna.is) fyrir kynningum um allt land á þeim samstarfs- og styrkjaáætlunum sem Íslendingar eiga aðgang að í gegnum EES samstarfið.  

Leit að íslenskum samstarfsaðilum

Um 160 erlend fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á samstarfi við íslensk fyrirtæki í gegnum evrópska gagnagrunninn Business Cooperation Database

Velheppnað fyrirtækjastefnumót á CeBit tæknisýningunni í Hannover í mars

Enterprise Europe Network stóð fyrir fyrirtækjastefnumóti á CeBit tæknisýningunni í Hannover í mars. Að venju tók mikill fjöldi fyrirtækja þátt í fyrirtækjastefnumótinu eða ríflega 630 aðilar frá 47 löndum.

65 milljónum Evra varið í nýjar orkulausnir í Evrópu

Evrópusambandið birti nýlega auglýsingu um styrki vegna orkuverkefna, sem ætlað er að styðja við aðgerðir vegna hlýnunar jarðar sem og að stuðla að sjálfbærni í orkumálum álfunnar.  

Auglýstur hafa verið umsóknarfrestir útboða undir Nýsköpunaráætlun ESB

Umsóknarfrestur vegna verkefnisins „Organization of the European Enterprise Awards 2010-2011" hefur verið auglýstur en hann er til 20. maí 2009.

Upplýsingasíða um stofnun fyrirtækja í ýmsum löndum Evrópu

Your Europe - Business portal er ný upplýsingasíða sem gefur áhugasömum aðgang að upplýsingum um hvernig stofna megi fyrirtæki víðs vegar um Evrópu.

Auglýstir hafa verið tveir umsóknarfrestir undir Nýsköpunaráætlun ESB

Umsóknarfrestur vegna verkefnisins „Entrepreneurial culture of young people, and entrepreneurship education" hefur verið auglýstur og er til 20. apríl 2009.

Kynning á auglýsingum um styrkjaumsóknir í sjóði Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunar ESB

Haldinn verður kynningarfundur um helstu auglýsingar Samkeppnis- og nýsköpunarætlunar Evrópusambandsins um styrki  fyrir 2009-2010 á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Keldnaholti í Reykjavík þann 24. mars frá 13:00-14:30.

 

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi á Norðurlandi

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana 18. og 19. mars n.k.

Inneignarkort á nýsköpunarþjónustu í Evrópu

Fyrirtæki í Evrópu eru hvött til að nota nýsköpun til að bæta samkeppnishæfni sína alþjóðlega. Í ESB er verið að búa til svokölluð inneignarkort fyrir fyrirtæki til að kaupa nýsköpunarþjónustu.

Íslensk fyrirtæki á fyrirtækjastefnumót Future Match á CeBit tæknisýningunni

Evrópumiðstöð tekur þátt í Future Match fyrirtækjastefnumótum 3.-9. mars nk. Markmið stefnumótanna er að gefa þátttakendum tækifæri á að finna samstarfsaðila í t.d. vöruþróun, framleiðslu, rannsóknum eða sölu.

Umsóknafrestir í orkuáætlun og samgönguáætlun 7. rammaáætlunarinnar

Umsóknarfrestur í orkuáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB er til 29.apríl. Einnig er laus umsóknarfrestur í samgönguáætlunina GALILEO, innan sömu rannsóknaráætlunar.  Hann rennur út 31.mars næstkomandi.

Taktu þátt í keppni um besta myndbandið um frumkvöðlastarfsemi

Hefur þig alltaf langað að taka af skarið og gera þá hluti sem þú trúir á ?  Vera engum háður, stjórna eigin tíma og gerast frumkvöðull?  Ef svo er, þá ertu öðruvísi.  Meirihluti fólks í Evrópu, hugsar ekki á þessum nótum og hefur þar að auki ekki hugmynd um hvað það, að vera frumkvöðull, felur í sér.  Getur þú gert því skil á myndbandi?

Nýsköpunarhæfni Evrópuþjóða 2008

Nýsköpunarhæfni Evrópuþjóða er mæld árlega og gefin út í þar til gerðri skýrslu, European Innovation Scoreboard (EIS). Komin er út skýrsla fyrir árið 2008, þar sem fram kemur að Danmörk, Svíþjóð og Finnland eru meðal forystuþjóða í nýsköpun í Evrópu. Ísland er talið miðlungshæft í nýsköpun -moderate innovators- ásamt m.a Spáni og Ítalíu.

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi á Háskólatorgi

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjörið tækifæri fyrir alla áhugasama að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.

Auglýst eftir styrkumsóknum sem tengjast nýsköpun og samkeppnishæfni

Eitt af verkefnum Enterprise Europe Network er að veita upplýsingar um þá styrki Evrópusambandsins sem tengjast samkeppnishæfni og nýsköpun. Þessir styrkir eru misháir en öllu jafnan er gerð krafa um samvinnu milli landa og mælanlegs ávinnings verkefnis.

EUROGIA+ styrkir í orkutækni

EUROGIA+ (Klasaáætlun Evreka á sviði orkutækni) er fimm ára EVREKA áætlun sem miðar að tækniforystu fyrir samkeppnishæfan orkuiðnað í Evrópu. Aætlunin tekur til orkuiðnaðar á breiðum grundvelli og hefur nýlega verið útvíkkuð til endurnýjanlegrar orku og orkutækni á nýjum sviðum. Önnur lýsing eftir umsóknum opnar 1. janúar 2009.

EUROGIA+ styrkir í orkutækni

EUROGIA+ (Klasaáætlun Evreka á sviði orkutækni) er fimm ára EVREKA áætlun sem miðar að tækniforystu fyrir samkeppnishæfan orkuiðnað í Evrópu. Aætlunin tekur til orkuiðnaðar á breiðum grundvelli og hefur nýlega verið útvíkkuð til endurnýjanlegrar orku og orkutækni á nýjum sviðum. Önnur lýsing eftir umsóknum opnar 1. janúar 2009.


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN