Beint á ađalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Fréttir EEN

Evrópumiđstöđ Impru kynnir EEN á ráđstefnu um rannsóknir í líf- og heilbrigđisvísindum

Evrópumiðstöð Impru kynnir starfsemi Enterprise Europe Network  á Háskólatorgi, 5. - 6. janúar næstkomandi.

Upplýsingadagur verđur í Brussel 26. janúar 2009 vegna auglýsingar nr. 3 eftir styrkumsóknum í upplýsingatćknihluta CIP (ICT PSP).

Þriðja auglýsing eftir styrkumsóknum í ICT PSP opnar 29. janúar og frestur til að skila inn umsóknum rennur út 2. júní 2009.  

Serbía er orđin ađili ađ Nýsköpunaráćtlun ESB (EIP) sem er einn af ţremur stólpum Samkeppnis- og nýsköpunaráćtlunar ESB (CIP).

Serbía er eitt af sex löndum sem sóst hafa eftir aðild að Nýsköpunaráætluninni og vinna í umsóknarferli um aðild að ESB.  

Samkeppnis- og nýsköpunaráćtlun Evrópusambandsins (CIP) auglýsir eftir styrkumsóknum

Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins auglýsir eftir styrkumsóknum. Markmið þessarar áætlunar Evrópusambandsins  er að styðja við nýsköpunarhæfni evrópskra fyrirtækja, aðallega lítilla og meðalstórra.

Forstjóri Nýsköpunarmiđstöđvar á pallborđsumrćđum hjá Enterprise Europe Network

                                                      

Fyrsta árlega ráðstefna Enterprise Europe Network var haldin í Strasbourg dagana 24.-26. Nóvember sl.  Yfirskrift ráðstefnunnar var „Closer to Europe´s SMEs - the mission of the Enterprise Europe Network". Þátttakendur voru nærri  800 talsins frá um 40 ríkjum Evrópu.

Auglýst eftir styrkjaumsóknum í upplýsinga- og samskiptatćknihluta, sjöundu rannsóknaáćtlunar ESB (FP7)

Upplýsinga- og samskiptatæknihluti sjöundu rannsóknaáætlunar ESB auglýsir eftir beiðnum um styrki í lýsingu nr. 4 af 6. Alls verða veittir styrkir fyrir 801 milljónir evra.

Hvernig finna má styrki fyrir lítil og međalstór fyrirtćki og hvernig best er ađ sćkja um – Upplýsingadagar í Berlín 2.-3. mars 2009

 Evrópusambandið leggur sérstaka áherslu á að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki - það eru hinar fjölmörgu aðgerðaráætlanir til vitnis um; Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunin (CIP). Sjöunda rammaáætlunin (FP7), og Eurostars áætlunin svo einhverjar þær helstu séu nefndar.  Hægt er að leita nánari upplýsinga og skrá sig ... 

Fyrirtćkjastefnumót á Orkuráđstefnunni GEO2

 Evrópumiðstöð tók þátt í fyrirtækjastefnumóti Enterprise Europe Network á orkuráðstefnunni GEO2 í byrjun nóvember sl.  Níu íslensk fyrirtæki voru með skráða prófíla inni á þessu stefnumóti og var óskað eftir 14 fundum við þessi fyrirtæki. Kristín Halldórsdóttir verkefnastjóri  Evrópumiðstöðvar sat þessa fundi fyrir hönd  fyrirtækjanna.  

Bandaríkin nýir samstarfsađilar í Enterprise Europe Network

Bandaríkin hafa nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu ríkja sem eru aðilar að Enterprise Europe Network. Með aðildinni opnast ný tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskóla.

Hugverkaréttur í verkefnum 7. Rannsóknaráćtlunar ESB

Rannís stendur fyrir námskeiði 6. nóvember nk. um hagnýt atriði varðandi hugverkarétt í 7. Rammaáætluninni. "IP issues within FP7 projects: Practical aspects". Fyrirlesari er Alicia Blaya fra IPR help desk.

Evrópusambandiđ og alţjóđaviđskipti

Ný skýrsla sem metur styrkleika ESB í alþjóðaviðskiptum hefur séð dagsins ljós. Þar kemur meðal annars fram að ESB hefur haldið markaðshlutdeild sinni vel og er enn stærsti útflytjandi framleiðsluvara í heiminum.

Meistaradeild sprotafyrirtćkja í Evrópu

Föstudaginn 31. október milli 8:30 og 10:00 er boðað er til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun. Á fundinum verður starfsemi Enterprise Europe Network einnig kynnt.

GEO2 – ráđstefna um sjálfbćra ţróun í orku og umhverfismálum

Evrópumiðstöð tekur þátt í GEO2 orkuráðstefnu um sjálfbæra þróun 4.-7. nóvember nk.  Markmið þessarar ráðstefnu er m.a. að vekja athygli á nýsköpun í sjálfbærri þróun í umhverfis- og orkumálum.  Þátttaka Evrópumiðstöðvar felst í svokölluðu fyrirtækjastefnumóti Enterprise Europe Network, en þar eru yfir hundrað fyrirtæki skráð.  Níu íslensk fyrirtæki eru þar á meðal og mun Kristín Halldórsdóttir sitja fundi fyrir þeirra hönd. Sjá nánar

Húsfyllir á opnun Enterprise Europe Network

Enterprise Europe Network á Íslandi opnaði formlega föstudaginn 10. október í Húsi Atvinnulífsins. Berglind Hallgrímdóttir framkvæmdastjóri Impru  ávarpaði gesti og kynnti þjónustu netverksins.

Sjávarútvegssýningin vel sótt

Evrópumiðstöð Impru á  Nýsköpunarmiðstöð Íslands, tók þátt í Íslensku Sjávarútvegssýningunni 2. - 4. október sl. en þar komu saman helstu fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Á sýningarbásnum mátti finna upplýsingar um bæði þjónustu Evrópumiðstöðvar, sem og netverksins Enterprise Europe Network sem Evrópumiðstöð er þátttakandi í ásamt Rannís og Útflutningsráði Íslands.

Leiđum saman ţekkingu, tćkni og fólk!

Enterprise Europe Network á Íslandi verður opnað föstudaginn 10. október kl. 14:30 í húsakynnum Útflutningsráðs að Borgartúni 35, 6 hæð.  Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon fjallar um orku, tækni og framtíðarsýn og Dr. Ólafur E. Sigurjónsson mun ræða um stofnfrumrannsóknir og Evrópusamstarf.

Evrópumiđstöđ kynnir starfsemi sína í Höfn í Hornafirđi

Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð heimsótti starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar á Höfn í Hornafirði 29. september og fundaði með fulltrúum fyrirtækja, stofnana og háskóla á Höfn. Á fundinum kynnti Anna Enterprise Europe Network sem er samstarfsnet Evrópumiðstöðvar, Rannís og Útflutningsráðs.

Fleiri vetnisbílar á götum Evrópu

Miðvikudaginn 3. September sl. fagnaði Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stuðningi Evrópuþingsins við tillögur hennar um einföldun á reglugerðum varðandi vetnisdrifin farartæki. 

 

Lýst eftir umsóknum í ýmis verkefni innan 7. rannsóknaáćtlun ESB

Þann 3. september var opnað fyrir umsóknir um rannsóknaverkefni í flestum undiráætlunum 7. rannsóknaáætlunar ESB. Lýst hefur verið eftir umsóknum í eftirtaldar undiráætlanir (umsóknarfrestur í sviga):

Evrópumiđstöđ kynnir starfsemi sína í Eyjum

Anna Lúðvíksdóttir sérfræðingur Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð heimsótti starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar í Vestmannaeyjum 10. júlí og fundaði með fulltrúum fyrirtækja, stofnana og háskóla í Eyjum. Á fundinum kynnti Anna kynnti þau tækifæri sem felast í Evrópusamstarfi og þeirri þjónustu sem boðið er upp á hjá Evrópumiðstöðinni.

ESB leitar eftir áliti atvinnulífsins um netverk fyrir opinber innkaup

Leitað er eftir álitsgerðum um netverk fyrir opinber innkaup. Markmiðið með slíku netverki er að hvetja til nýsköpunar í ákveðnum greinum sem skilgreindar hafa verið sem leiðandi í nýsköpun í Evrópu.

Albanir nýir samstarfsađilar

Albanía er nú þátttakandi í Nýsköpunar- og samkeppnisáætlun Evrópusambandsins. Er Albanía fimmta ríkið af umsóknar- og væntanlegum umsóknarríkjum sem tekur þátt í þessari áætlun.

Mikill ávinningur fyrir fyrirtćki í viđskiptum innan EES

Vænst er að innri markaðurinn mun styrkjast mikið vegna nýrra aðgerða ESB sem miða að því að eyða öllum viðskiptahömlum innan Evrópu.

Hugum ađ ţví smáa

Lítil og meðalstór fyrirtæki gegna lykilhlutverki í þróun hagkerfa í framtíðinni en þurfa samt hvað mest að klífa ýmis konar hindranir viðskiptaumhverfisins.

Evrópumiđstöđ Impru stuđlar ađ samstarfi í stofnfrumurannsóknum

Nýlega náðust mikilvægir samstarfssamningar milli Blóðbankans á Íslandi og rannsóknaraðila í Skotlandi og Spáni fyrir tilstilli Evrópumiðstöðvar Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Slík tækni- og þekkingaryfirfærsla milli fyrirtækja eða stofnana er eitt aðalverkefna Evrópumiðstöðvarinnar.

Lýst eftir umsóknum í orkurannsóknir 7 RÁ (ESB)

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til orkurannsókna undir 7. rannsóknaáætlun ESB með áherslu á hagnýtar rannsóknir og endurnýjanlega orkugjafa. Umsóknarfrestur er til 8. október 2008 og rennur fresturinn út kl. 17 að staðartíma í Brussel.

Íslenska Sjávarútvegssýningin 2008

Evrópumiðstöð Impru á  Nýsköpunarmiðstöð Íslands, tekur þátt í Íslensku Sjávarútvegssýningunni 2. - 4. október 2008 en þar koma saman helstu fyrirtæki á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu.

ESB auglýsir eftir tillögum um ađgerđir á sviđi orkumála

Framkvæmdastofnun samkeppnishæfni og nýsköpunar (EACI) auglýsir eftir tillögum í tengslum við starfsáætlun áætlunarinnar „Skynsamleg stýring orkunotkunar í Evrópu" fyrir árið 2008. Tekið verður við tillögum um allar tegundir aðgerða til 26. júní 2008.

Kynning á markáćtlun um öndvegissetur og klasa

Um hundrað manns mættu á kynningu Rannís og Impru á Hótel Sögu á nýrri markáætlun Vísinda- og tækniráðs um öndvegissetur og klasa.

HH2 hafiđ á Vestfjörđum

Ferðaþjónustuverkefnið HH2 - frá hugmynd til markaðar hófst á Vestfjörðum með tveggja daga vinnufundi dagana 9.-10. apríl. Verkefnið er sjálfstætt framhald verkefnisins Hagvöxtur á heimaslóð (HH) sem yfir 115 ferðaþjónustuaðilar hafa nú tekið þátt í víðsvegar um land þar sem lögð er áhersla á faglega hæfni og samvinnu fyrirtækjanna.

Leitađu tćkifćra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Ţú ert hérna:

  Fréttir

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir ţú?

Að við þjónustum án endurgjalds íslensk lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og háskóla við að koma á viðskiptum og tengslum við aðila í Evrópu og víðar.

Sjá nánar.


Flýtileiđir


Fréttaveita EEN